Veður og færð

Sæki gögn…

Þar sem þú ert

Sæki staðsetningu…

Hvanneyri

Sæki gögn…

Vegir nálægt þér

Bíð eftir staðsetningu

Norðurljós

Sæki norðurljósaspá…

Umferð (nördar)

greitt hægt teppa · Kort og umferð: TomTom

Sæki umferð…

Tölur: Vegagerðin.

Hvað þýða litirnir og stigin?

Hviður verða rauðar við 20 m/s eða meira. Stigið undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi fylgir vindviðmiðum Vegagerðarinnar og ræðst af mestu vindhviðu og færð:

Færð20–2525–3030–3535+
Autt, blautt2233
Hálkublettir2333
Hált3333

Hviður í m/s. Stig 1 er gult, stig 2 appelsínugult og stig 3 rautt. Viðmiðin eru gerð fyrir stærri ökutæki.

Umferð: tölur frá umferðarteljurum Vegagerðarinnar. „Hægagangur“ þýðir að meðalhraði síðustu 15 mínútna er undir 50 km/klst og „teppa“ að hann er undir 30 km/klst. Það er regla síðunnar, ekki Vegagerðarinnar. Tölur eldri en klukkustundar eru merktar gamlar.

Greiðfær vegur er talinn blautur. Ef veghiti er 0° eða kaldari er hann talinn með hálkubletti, því færð getur verið skráð fyrir mörgum klukkustundum. Snjór, krapi og hálka teljast hált. Ef færð vantar ræður veghiti.

Undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi er aðeins horft á færð á Hringveginum sjálfum.

Viðvaranir efst eru frá Veðurstofunni og gilda fyrir heil spásvæði.

Lokanir birtast aðeins ef vegur er lokaður eða ófær á leiðinni frá Hvanneyri til Borgarness (Borgarfjarðarbraut og Hringvegur við Hafnarfjall) eða til Reykjavíkur (sama leið, Melasveit, Hvalfjarðargöng, Kjalarnes og Vesturlandsvegur).

Bakgrunnurinn fylgir sólargangi og veðri þar sem þú ert: sól og blár himinn, ský, snjór, regn eða stjörnur. Fjallið er Skarðsheiði með Skessuhorni eins og hún sést frá Hvanneyri, máluð í anda Gustave Courbet ofan á hæðarlíkan (Copernicus DEM), svo tindarnir eru á réttum stöðum.

Norðurljósamatið er gróft: það notar virknispá Veðurstofunnar (0 til 9) og hversu heiðskírt spáin segir að verði á dimmum tímum í nótt þar sem þú ert.