Vegir nálægt þér
Bíð eftir staðsetningu
Norðurljós
Sæki norðurljósaspá…
Umferð (nördar)
greitt hægagangur teppa · Kort og umferð: TomTom
Sæki umferð…
Tölur: Vegagerðin.
Hvað þýða litirnir og stigin?
Hviðutalan verður rauð við 20 m/s eða meira. Stigið undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi fylgirStigið á vindhviðustöðunum fylgir vindviðmiðum Vegagerðarinnar og ræðst af mestu vindhviðu og færð:
| Færð | 20–25 | 25–30 | 30–35 | 35+ |
|---|---|---|---|---|
| Autt, blautt | 2 | 2 | 3 | 3 |
| Hálkublettir | 2 | 3 | 3 | 3 |
| Hált | 3 | 3 | 3 | 3 |
Hviður í m/s. Stig 2 er appelsínugult og stig 3 rautt. Viðmiðin eru gerð fyrir stærri ökutæki.
Umferð: tölur frá umferðarteljurum Vegagerðarinnar. „Hægagangur“ þýðir að meðalhraði síðustu 15 mínútna er undir 50 km/klst og „teppa“ að hann er undir 30 km/klst. Það er regla síðunnar, ekki Vegagerðarinnar. Tölur sem eru meira en klukkustundar gamlar eru merktar gamlar.
Greiðfær vegur er talinn blautur. Ef veghiti er 0° eða kaldari er hann talinn með hálkublettum, því færð getur verið skráð fyrir mörgum klukkustundum. Það gildir líka í leiðalínunum („hálkublettir líklegir“). Ef skráð er snjór, krapi eða hálka telst vegurinn háll. Ef færð vantar ræður veghiti.
Undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi er aðeins horft á færð á Hringveginum sjálfum.
Viðvaranir efst eru frá Veðurstofunni og gilda fyrir heil spásvæði.
Þegar þú ert meira en 25 km að heiman sýna leiðalínurnar færðina héðan alla leið heim og til næsta stórbæjar. Ýttu á bæjarnafnið til að velja annan bæ; valið gildir þar til þú kemur heim. Leiðin er reiknuð eftir vegakerfi Vegagerðarinnar og getur vikið frá leiðinni sem þú ekur. Kílómetrarnir eru eftir veginum.
Vindhviðustaðirnir (þegar þú ert meira en 25 km að heiman) eru þeir staðir Vegagerðarinnar sem eru næst þér, innan 60 km, og fylgja símanum. Hver þeirra fær mælingu næstu vegaveðurstöðvar. Rauð lína birtist ef vindurinn blæs núna úr átt sem Vegagerðin telur varasama á staðnum og hviður eru 15 m/s eða meira.
Lokanir birtast aðeins ef vegur er lokaður eða ófær á leiðinni frá Björgum til Húsavíkur (Norðausturvegur um Köldukinn og Aðaldal) eða til Akureyrar (Kaldakinn, Ljósavatnsskarð og Vaðlaheiðargöng). Vegur 851 heim að Björgum er ekki í færðargögnum Vegagerðarinnar.
Lokanir birtast aðeins ef vegur er lokaður eða ófær á leiðinni frá Hvanneyri til Borgarness (Borgarfjarðarbraut og Hringvegur við Hafnarfjall) eða til Reykjavíkur (sama leið, Melasveit, Hvalfjarðargöng, Kjalarnes og Vesturlandsvegur).
Bakgrunnurinn fylgir sólargangi og veðri þar sem þú ert: sól og blár himinn, ský, snjór, regn eða stjörnur. Fjallið á myndinni er Skarðsheiði í Borgarfirði, máluð í anda Gustave Courbet.
Bakgrunnurinn fylgir sólargangi og veðri þar sem þú ert: sól og blár himinn, ský, snjór, regn eða stjörnur. Fjallið er Skarðsheiði með Skessuhorni eins og hún sést frá Hvanneyri, máluð í anda Gustave Courbet ofan á hæðarlíkan (Copernicus DEM), svo tindarnir eru á réttum stöðum.
Norðurljósamatið er gróft: það notar virknispá Veðurstofunnar (0 til 9) og hversu heiðskírt spáin segir að verði á dimmum tímum í nótt þar sem þú ert.